mið 29. júlí 2020 11:00
Elvar Geir Magnússon
Ancelotti dreymir um að fá Immobile
Ciro immobile, markahrókur Lazio.
Ciro immobile, markahrókur Lazio.
Mynd: Getty Images
Carlo Ancelotti, stjóri Everton, á sér þann draum að fá ítalska sóknarmanninn Ciro Immobile frá Lazio.

Immobile er markahæstur í ítölsku A-deildinni á þessu tímabili með 34 mörk í 35 spiluðum leikjum.

Sagt er að Ancelotti vilji að Everton geri tilboð í Immobile en þessi þrítugi leikmaður er samningsbundinn Lazio til 2023.

Dominic Calvert-Lewin og Richarlison voru markahæstir hjá Everton í ensku úrvalsdeildinni á liðnu tímabili, með fimmtán mörk hvor. Næstur á eftir þeim var Bernard með aðeins þrjú mörk.

Ancelotti vill styrkja leikmannahóp sinn í sumar og Jeremie Boga, sóknarmaður Sassuolo, og Wilfried Zaha hjá Crystal Palace eru einnig sagðir á blaði hjá Ancelotti.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner