Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 29. júlí 2020 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
David Silva í viðræðum við Lazio
Silva gæti lagt upp nokkur mörk fyrir Ciro Immobile, markakong ítalska boltans undanfarin ár.
Silva gæti lagt upp nokkur mörk fyrir Ciro Immobile, markakong ítalska boltans undanfarin ár.
Mynd: Getty Images
Fjölmiðlar á Spáni og Ítalíu segja David Silva vera í viðræðum við Lazio þessa dagana.

Hann á að hafa snætt með Igli Tare, yfirmanni íþróttamála hjá Lazio, og þeirra viðræður gengið vel.

Hinn 34 ára gamli Silva er samningslaus eftir áratug hjá Manchester City, þar sem hann skoraði 77 mörk í 434 leikjum.

Silva er þekktur sem einn af mest skapandi miðjumönnum heims og væri afar spennandi viðbót við sterka miðju Lazio, þar sem Luis Alberto og Sergej Milinkovic-Savic eru lykilmenn.

Lazio var lengi vel í titilbaráttu á Ítalíu en liðinu gekk herfilega eftir Covid-pásu og er að berjast við Inter og Atalanta um 2. sætið.
Athugasemdir
banner
banner
banner