Varnarmaðurinn Ásgeir Eyþórsson hefur skrifað undir nýjan samning við Fylki.
Nýr samningur hans gildir til ársins 2024.
Nýr samningur hans gildir til ársins 2024.
„Seðlabankastjórinn er búinn að skrifa undir nýjan verðtryggðan samning við Fylki til ársins 2024. Hann tók það sérstaklega fram við undirritun að hann beri ekki ábyrgð á háum stýrivöxtum og verðbólgumarkmið náist ekki í ár," skrifar Hrafnkell Helgason, formaður meistaraflokksráðs Fylkis, á Twitter.
Ásgeir hefur gegnt stóru hlutverki í varnarleik Fylkis síðustu árin. Hann er í heildina búinn að leika 266 KSÍ leiki fyrir Fylki og skora 23 mörk.
Hann er búinn að leika allan sinn feril í Árbænum og hann mun halda þeirri vegferð áfram.
Fylkir er sem stendur í öðru sæti Lengjudeildarinnar og er staða liðsins mjög góð þar sem þeir eru sjö stigum á undan Fjölni sem er í þriðja sæti.
Athugasemdir