Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   lau 29. ágúst 2020 15:36
Brynjar Ingi Erluson
Heimir Hallgríms og lærisveinar hans í Al Arabi í bikarúrslit
Aron Einar Gunnarsson og hans menn eru komnir í úrslitaleik Ooredoo-bikarsins
Aron Einar Gunnarsson og hans menn eru komnir í úrslitaleik Ooredoo-bikarsins
Mynd: Getty Images
Heimir Hallgrímsson og lærisveinar hans í Al Arabi eru komnir í úrslitaleik Ooredoo-bikarsins í Katar eftir 2-1 sigur á Al Rayyan í undanúrslitum í dag.

Deildin í Katar kláraðist á dögunum og hafnaði Al Arabi í sjöunda sæti deildarinnar.

Liðið hefur þó aldeilis tekist að bæta það upp með góðum árangri í bikarnum en liðið er nú komið í úrslitaleikinn eftir 2-1 sigur á Al Rayyan.

Aron Einar Gunnarsson var í byrjunarliði Al Arabi en fór af velli á 62. mínútu.

Al Arabi mætir Al Ahli eða Al Sadd í úrslitum bikarsins en spænska goðsögnin Xavi þjálfar Al Sadd.

Ooredoo-bikarinn er bikar sem fer fram meðan hlé er á deildinni eða þegar leikmenn eru kallaðir í landsliðsverkefni. Bikarinn er gerður fyrir úrvalsdeildarfélög til að þróa efniviðinn í liðinu en þetta kemur fram á heimasíðu sambandsins.
Athugasemdir
banner
banner
banner