Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 29. ágúst 2021 17:27
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
2. deild kvenna: Jafntefli niðurstaðan í fyrri leiknum
Fram var á heimavelli í dag.
Fram var á heimavelli í dag.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fram 1 - 1 Fjarðab/Höttur/Leiknir
0-1 Bayleigh Ann Chaviers ('22)
1-1 Oddný Sara Helgadóttir ('27)

Fram og Fjarðab/Höttur/Leiknir áttust við í fyrri leik liðanna í undanúrslitum 2. deildar kvenna í dag.

Gestirnir tóku forystuna í leiknum um miðbik fyrri hálfleiks er Bayleigh Ann Chaviers skoraði. Forystan entist ekki lengi því Oddný Sara Helgadóttir jafnaði metin fyrir Fram aðeins fimm mínútum síðar.

Þetta var skemmtilegur fimm mínútna kafla en fleiri urðu mörkin ekki og lokatölur því 1-1.

Þetta var fyrri leikur liðanna en seinni leikur liðanna er í Fjarðabyggðarhöllinni um næstu helgi. Fjarðab/Höttur/Leiknir endaði í fyrsta sæti deildarinnar og Fram í fjórða sæti.

Í hinu undanúrslitaeinvíginu eigast við Völsungur og Fjölnir. Þar vann Fjölnir 2-0 sigur í fyrri leiknum í gær.
Athugasemdir
banner
banner
banner