Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   sun 29. ágúst 2021 18:38
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
3. deild: Ekki góð úrslit fyrir KFG á Dalvík
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Dalvík/Reynir 0 - 0 KFG

Niðurstaðan var markalaust jafntefli þegar Dalvík/Reynir og KFG áttust við í seinni leik dagsins í 3. deild karla.

Það voru því miður engin mörk skoruð í leiknum á Dalvík.

Það vantaði mörkin en í staðinn litaðist leikurinn af gulum spjöldum. Það fóru alls sjö gul spjöld á loft í leiknum; fjögur á Dalvík/Reyni og þrjú á gestina úr Garðabæ.

Dalvík/Reynir siglir lygnan sjó í sjöunda sæti deildarinnar á meðan KFG er tveimur stigum frá Sindra í öðru sæti, með leik til góða. Fyrir ofan KFG er Ægir í þriðja sæti, einu stigi frá Sindra og með tvo leiki til góða. Úrslitin í dag eru alls ekki góð fyrir KFG í baráttunni um það að komast upp.

Önnur úrslit í dag:
3. deild: Höttur/Huginn aftur á sigurbraut
Athugasemdir
banner
banner