Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
Jökull: Læti og stemning sem stuðningsmennirnir spúa yfir völlinn til strákanna
Helgi Fróði: Geggjað að vera í besta klúbbnum
Addi Grétars pirraður: Menn þurfa að hafa smá 'sens' fyrir því sem þeir eru að tala um
Ísak Óli: FH var langfyrsti kosturinn hjá mér
Bestur í Mjólkurbikarnum: Vakinn með símhringingu - „Á Jölla mikið að þakka"
Sigdís Eva: Vissum að við gætum þetta og sýndum það í leiknum
Pétur: Það var ekkert lið inni á vellinum
John Andrews: Vorum að spila gegn líklega besta liði landsins
Kallaði þetta gott eftir fimm hnéaðgerðir og fær góð ráð frá pabba sínum
Þurfti að róa Pablo eftir leik - „Leikmenn eiga ekki að skipta sér af áhorfendum“
„Ef þetta heldur svona áfram verða bara allir í banni eftir smá stund"
Hefði sætt sig við jafntefli - „Ég held að við höfum reynt 5 eða 6 plön í þessum leik“
Alex Freyr ósáttur: Þetta er bara sorglegt
Eysteinn á von á geggjuðum leik - „Jölli er alltaf Jölli í Portúgal"
Arnór Smára: Hafði persónulega mikla þýðingu fyrir mig
Draumadráttur Jökuls: Augnablik á stóran hluta af mínu hjarta og mun alltaf gera
Kjartan Henry: Hallgrímur sá ekki til sólar eftir það
Var vítaspyrnudómurinn í Árbæ rangur?
Lék sinn fyrsta leik í efstu deild og vildi víti - „Fann fyrir snertingu og lét mig detta"
Líður eins og Valsarar hafi tapað leiknum - „Hafði aldrei trú á því að hann væri að fara skora"
   sun 29. ágúst 2021 22:08
Stefán Marteinn Ólafsson
Brynjar Björn: Menn hafi trú og vilja til þess að berjast fyrir hvorn annan
Brynjar Björn Gunnarsson þjálfari HK
Brynjar Björn Gunnarsson þjálfari HK
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
HK fékk Keflavík í heimsókn í Kórinn þegar 19.umferð Pepsi Max deildar karla lauk nú í kvöld. Leikurinn var gríðarlega mikilvægur fyrir bæði lið en HK gat með sigri átt möguleika á því að komast upp úr fallsæti.

HK fór með sigur af hólmi og lyfti sér þar með upp úr fallsæti og sendu Fylkismenn undir rauðu línuna.

Lestu um leikinn: HK 1 -  0 Keflavík

„Hrikalega mikivægur sigur og bara erfiður leikur, það er erfitt að undirbúa sig fyrir svona leik, þetta snýst ekki mikið um taktík og annað bara að menn hafi trú og vilja til þess að berjast fyrir hvorn annan sem við höfum gert en þurftum extra á því að halda í dag," sagði Brynjar Björn Gunnarsson þjálfari HK eftir leik.

HK fór með sigrinum í kvöld upp úr fallsæti deildarinnar.
„Það er töluvert eftir og við gefum okkur meiri séns núna eftir þennan leik heldur en eins og staðan var fyrir leik."

Það var Keflvíkingurinn í liði HK sem tryggði þeim þennan mikilvæga sigur en Stefan Ljubicic skoraði eina mark leiksins.
„Er það ekki oft þannig? En burt séð frá því þá var Stebbi ógnandi og tók þetta færi mjög vel."

Viðtalið í heild má sjá í spilaranum hér fyrir ofan.
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner