Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 29. ágúst 2021 18:22
Stefán Marteinn Ólafsson
Byrjunarlið HK og Keflavíkur: Valgeir Valgeirs bekkjaður
Valgeir Valgeirson er á varamannabekk HK í kvöld.
Valgeir Valgeirson er á varamannabekk HK í kvöld.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Í kvöld klukkan 19:15 verður flautað til leiks í Kórnum þegar HK og Keflavík eigast við í 19. umferð Pepsi Max-deildarinnar.

Það er gríðarleg barátta á báðum endum töflunnar en heimamenn í HK eru tveimur stigum frá öruggu sæti þegar fjórar umferðir eru eftir og geta með sigri í kvöld og hagstæðum úrslitum annar staðar lyft sér upp fyrir rauðu línuna. Keflavík situr fjórum stigum frá fallsvæðinu.

HK gerir þrjár breytingar á sínu liði frá síðasta leik en inn koma Ásgeir Marteinsson, Atli Arnarson og Stefan Ljubicic á kostnað Ólafs Eyjólfs, Jón Arnars Barðdal og Valgeir Valgeirssonar. Keflvíkingar gera þá tvær breytingar á sínu liði en inn koma Ari Steinn Guðmundsson og Adam Árni Róbertsson fyrir Kian Williams og Sindra Þór Guðmundsson.

Smelltu hérna til að fara í beina textalýsingu.

Byrjunarlið HK:
25. Arnar Freyr Ólafsson (m)
2. Ásgeir Börkur Ásgeirsson
4. Leifur Andri Leifsson (f)
6. Birkir Valur Jónsson
7. Birnir Snær Ingason
8. Arnþór Ari Atlason
10. Ásgeir Marteinsson
18. Atli Arnarson
21. Ívar Örn Jónsson
28. Martin Rauschenberg
30. Stefan Alexander Ljubicic

Byrjunarlið Keflavíkur:
1. Sindri Kristinn Ólafsson (m)
7. Davíð Snær Jóhannsson
8. Ari Steinn Guðmundsson
9. Adam Árni Róbertsson
11. Helgi Þór Jónsson
14. Dagur Ingi Valsson
22. Ástbjörn Þórðarson
23. Joey Gibbs
25. Frans Elvarsson (f)
28. Ingimundur Aron Guðnason
30. Marley Blair
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner