Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 29. ágúst 2021 16:04
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Byrjunarlið KR og Leiknis: Ægir byrjar - Tvær breytingar hjá Leikni
Ægir Jarl
Ægir Jarl
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Klukkan 17:00 hefst viðureign KR og Leiknis í 19. umferð Pepsi Max-deildarinnar.

Um Reykjavíkurslag er að ræða, KR er í 4. sæti deildarinnar fyrir leikinn í dag og Leiknir er í 8. sæti. KR þarf á sigri að halda til að halda í við toppliðin og Leiknir getur tryggt sæti sitt í deildinni.

Smelltu hér til að fara í beina textalýsingu frá leiknum!!!

KR vann ÍA á útivelli í síðustu umferð. Það er ein breyting á liðinu frá þeim leik. Kristján Flóki Finnbogason er ekki í leikmannahópnum og Ægir Jarl kemur inn í liðið. Kristinn Jónsson snýr aftur í leikmannahópinn eftir veikindi.

Leiknir gerði markalaust jafntefli gegn HK í síðustu umferð. Tvær breytingar eru á liðinu. Gyrðir Hrafn og Árni Elvar koma inn í liðið fyrir þá Mána Austmann og Sólon Breka Leifsson. Hvorugur þeirra er í hóp í dag.

Byrjunarlið KR:
1. Beitir Ólafsson (m)
5. Arnór Sveinn Aðalsteinsson
6. Grétar Snær Gunnarsson
9. Kjartan Henry Finnbogason
10. Pálmi Rafn Pálmason
11. Kennie Chopart
14. Ægir Jarl Jónasson
16. Theodór Elmar Bjarnason
22. Óskar Örn Hauksson (f)
25. Finnur Tómas Pálmason
29. Stefán Árni Geirsson

Byrjunarlið Leiknis:
12. Guy Smit (m)
4. Bjarki Aðalsteinsson (f)
5. Daði Bærings Halldórsson
8. Árni Elvar Árnason
11. Brynjar Hlöðversson
17. Gyrðir Hrafn Guðbrandsson
18. Emil Berger
19. Manga Escobar
23. Dagur Austmann
24. Daníel Finns Matthíasson
26. Hjalti Sigurðsson

Smelltu hér til að fara í beina textalýsingu frá leiknum!!!
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner