Keflvíkingar heimsóttu HK í Kórnum þegar 19.umferð Pepsi Max deild karla lauk nú í kvöld.
Leikurinn var gríðarlega mikilvægur fyrir bæði lið en Keflvíkingar hefðu svo gott sem getað kvatt falldrauginn með sigri í kvöld en það voru HK sem báru sigurorð af Keflvíkingum.
Leikurinn var gríðarlega mikilvægur fyrir bæði lið en Keflvíkingar hefðu svo gott sem getað kvatt falldrauginn með sigri í kvöld en það voru HK sem báru sigurorð af Keflvíkingum.
Lestu um leikinn: HK 1 - 0 Keflavík
„Fyrstu viðbrögð eru bara svekktir með tapið og erfitt að spila tvo leiki eða hluta af tveim leikjum manni færri. Þeir sem að héldu áfram inná var ekkert mikið við þeirra framistöðu að athuga og þeir opnuðu okkur ekki mikið en nógu mikið þannig bara svekktur með tapið," sagði Eysteinn Húni Hauksson annar þjálfara Keflavíkur aðspurður um fyrstu viðbrögð eftir leikinn í kvöld.
Keflvíkingar eru núna tveim stigum frá fallsæti en Eysteinn Húni vill ekki meina að það sé komið neitt stress í hópinn.
„Nei ekki í mig allavega en staðreyndin er samt sú að við þurfum að fara vinna leiki og þetta er ennþá í okkar höndum og það er undir mannskapnum og okkur starfsliðinu komið að klára þetta dæmi og sýna og sanna okkar tilverurétt í þessari deild.
Kaldhæðni örlagana fyrir Keflvíkinga að það skuli vera Keflvíkingurinn í liði mótherjana sem tryggir sigurinn.
„Ég spái voða lítið í svona hluti og hann gerði þetta vel og gerðum ekki nógu vel og það er það sem að gerðist og það eru enginn nornafræði sem ég vil tengja við það.
Viðtalið í heild má sjá í spilaranum hér fyrir ofan.
Stöðutaflan
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
Athugasemdir