Breiðablik er að valta yfir Fylki í Pepsi Max-deild karla, í leik sem er núna í gangi.
Ákveðinn hluti stuðningsmanna Fylkis höguðu sér ekki vel í fyrri hálfleiknum að því er kemur fram í textalýsingu Fótbolta.net frá leiknum.
„Jæja nú verð ég að óska eftir smá standard, Fylkisstuðningsmenn köstuðu flösku í fyrirliða Blika, Höskuld Gunnlaugsson, þegar það var innkast," skrifaði Arnar Laufdal Arnarsson í beina textalýsingu sína frá leiknum.
„Þetta er til skammar."
Smelltu hér til að fara í beina textalýsingu frá leiknum. Breiðablik er að fara á toppinn!
Athugasemdir