Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   sun 29. ágúst 2021 09:31
Brynjar Ingi Erluson
Messi, Neymar og Mbappe í hópnum hjá PSG gegn Reims
Lionel Messi er klár í slaginn
Lionel Messi er klár í slaginn
Mynd: EPA
Franska félagið Paris Saint-Germain er búið að staðfesta leikmannahópinn fyrir deildarleikinn gegn Reims í kvöld en Lionel Messi, Neymar og Kylian Mbappe eru allir í hóp.

Messi mun spila sinn fyrsta leik fyrir PSG frá því hann kom á frjálsri sölu frá Barcelona á dögunum.

Neymar hefur þá jafnað sig af meiðslum og er einnig í hópnum gegn Reims.

Óvæntasta er það að Kylian Mbappe er í hópnum þrátt fyrir viðræður PSG við Real Madrid.

Mbappe vill komast frá PSG í þessum glugga en hann verður samningslaus næsta sumar. Það að hann sé í hópnum gæti þýtt það að Mbappe fer ekki í þessum glugga.


Athugasemdir
banner
banner
banner