Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   sun 29. ágúst 2021 11:50
Brynjar Ingi Erluson
Sabitzer á leið til Bayern - Leipzig í viðræðum við Moriba
Marcel Sabitzer
Marcel Sabitzer
Mynd: Getty Images
Austurríski miðjumaðurinn Marcel Sabitzer er að semja við þýska félagið Bayern München en bæði BILD og Kicker segja frá þessu í dag.

Bayern hefur verið í viðræðum við RB Leipzig síðustu vikur um Sabitzer og virðast liðin nú hafa komist að samkomulagi um kaupverð sem nemur um 16 milljónum evra.

Það er algert gjafaverð fyrir þennan fjölhæfa miðjumann en það má gera ráð fyrir því að félagaskiptin verði kynnt á næstu sólarhringum.

Leipzig er búið að vinna hörðum höndum að því að finna eftirmann hans og er hann nú fundinn. Samkvæmt þýsku miðlunum er Ilaix Moriba, miðjumaður Barcelona, á leið til félagsins.

Sabitzer og Moriba eru með sama umboðsmann en Barcelona er reiðubúið að selja þennan efnilega leikmann á aðeins 15 milljónir evra.

Moriba er aðeins 18 ára gamall og steig sín fyrstu skref með aðalliði Barcelona á síðustu leiktíð. Tottenham Hotspur ræddi einnig við Moriba og fylgarlið hans en miðjumaðurinn knái tilkynnti enska félaginu í gær að hann væri búinn að ákveða að semja við Leipzig.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner