Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 29. ágúst 2021 17:45
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Tveir af bestu markvörðum sögunnar hrósuðu De Gea
David de Gea.
David de Gea.
Mynd: EPA
Spænski markvörðurinn David de Gea átti stórgóðan leik fyrir Manchester United í 1-0 sigrinum á Úlfunum í dag.

De Gea átti markvörslu í seinni hálfleiknum sem varð til þess að tveir af bestu markvörðum í sögu Man Utd ákváðu að fara á Twitter og skrifa um hana.

„Þetta hlýtur að vera markvarsla tímabilsins," skrifaði Peter Schmeichel.

„Sterk hendi," skrifaði Hollendingurinn Edwin van der Sar um markvörsluna.

Romain Saiss fékk algjört dauðafæri til að koma Úlfunum yfir en á einhvern ótrúlegan hátt tókst De Gea að verja í tvígang. Þetta minnti á De Gea frá árinu 2015. Hægt er að sjá þessa stórkostlegu markvörslu hérna



Athugasemdir
banner
banner
banner