Belgíski miðjumaðurinn Axel Witsel er ekki á leið til Aston Villa frá Borussia Dortmund en þetta staðfestir Rene Maric, aðstoðarþjálfari Dortmund, á Twitter.
Witsel er 32 ára gamall og á eitt ár eftir af samningi hjá Dortmund en enskir miðlar hafa greint frá því að Aston Villa væri á eftir þessum öfluga miðjumanni.
Maric segir þessar sögusagnir byggðar á sandi og að Witsel sé ekki á förum.
„Þetta er augljóslega kjaftæði og skil ekki að fólk lætur eins og þetta sé ekki bara gert til að búa til fyrirsagnir," sagði Maric.
Athugasemdir