Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mán 29. ágúst 2022 21:33
Ívan Guðjón Baldursson
2. deild: Ægir þarf kraftaverk eftir sigur gegn Haukum
Mynd: Ægir

Ægir 2 - 0 Haukar
1-0 Stefan Dabetic ('45)
2-0 Dimitrije Cokic ('93)


Ægir er í þriðja sæti 2. deildar karla eftir sigur á heimavelli gegn Haukum í dag.

Stefan Dabetic skoraði í uppbótartíma fyrri hálfleiks og innsiglaði Dimitrije Cokic sigurinn í uppbótartíma seinni hálfleiks.

Ægismenn eru níu stigum frá öðru sæti þegar þrjár umferðir eru eftir og með talsvert verri markatölu heldur en Þróttarar sem sitja í öðru sætinu.

Þeir þurfa því sannkallað kraftaverk til að komast upp í Lengjudeildina, þeir verða að treysta á þrjú töp hjá Þrótti og vinna síðustu leikina sína með þokkalegum markamun.

Haukar sigla lygnan sjó með 24 stig eftir 19 umferðir.


Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner