Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mán 29. ágúst 2022 20:00
Ívan Guðjón Baldursson
Birmingham að kaupa Tahith Chong næst
Mynd: Heimasíða Man Utd

Birmingham City fékk miðjumanninn efnilega Hannibal Mejbri lánaðan frá Manchester United í dag og ætlar að gera atlögu að öðrum ungum leikmanni félagsins næst, Tahith Chong.


Chong verður 23 ára í desember og á aðeins eitt ár eftir af samningi sínum við Rauðu djöflana. Hann er hægri kantmaður að upplagi en getur einnig spilað sem sóknartengiliður eða vinstri kantur.

Chong lék fyrir Birmingham að láni á síðustu leiktíð og er félagið talið hafa áhuga á að kaupa leikmanninn frá Man Utd.

Kaupverðið verður ekki hátt þar sem Chong vill komast til félags þar sem hann fær spiltíma með byrjunarliðinu, en hann á aðeins 16 leiki að baki fyrir Man Utd eftir sex ár hjá félaginu.


Athugasemdir
banner
banner
banner