Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 29. ágúst 2022 09:00
Brynjar Ingi Erluson
Carragher um Richarlison: Hann æsir þá upp og mig líka!
Jamie Carragher
Jamie Carragher
Mynd: Getty Images
Sparspekingnum Jamie Carragher var ekki skemmt er hann lýsti leik Nottingham Forest og Tottenham í gær.

Brasilíski sóknarmaðurinn Richarlison fór að halda lofti á vinstri vængnum er Tottenham var tveimur mörkum yfir og fimm mínútur eftir af leiknum sem varð til þess að Brennan Johnson, leikmaður Forest, fékk nóg og tæklaði hann.

Richarlison rúllaði eftir grasinu en þetta var mikið til umræðu á samfélagsmiðlum í gær.

Carragher var ekki ánægður með þessa tilburði Richarlison.

„Vá! Hann gerir þetta til að æsa fólk upp. Þú getur ekki gert þetta, en hvað er hann samt að gera? Þessi gaur, Richarlison, æsir fólk og mig líka. Við hverju býstu frá Johnson? Ég er ekki að segja að það eigi að þola svona viðbrögð en...," sagði Carragher í lýsingunni.

Sjá einnig:
Sýndi Richarlison hvar Davíð keypti ölið - „Hvernig hélt hann að þetta myndi enda öðruvísi?
Athugasemdir
banner
banner
banner