Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 29. ágúst 2022 19:15
Ívan Guðjón Baldursson
Elías Rafn frábær gegn Bröndby - Alexander Ingi með sigurmark
Mynd: Getty Images
Mynd: Fótbolti.net - Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Elías Rafn Ólafsson átti stórleik er Midtjylland lagði Bröndby að velli í sjöundu umferð danska deildartímabilsins.


Pione Sisto og Evander skoruðu mörk Mið-Jótlendinga í fyrri hálfleik og varði Elías Rafn sex marktilraunir í leiknum til að halda markinu hreinu.

Lokatölur urðu 0-2 og er Midtjylland aðeins með 9 stig eftir erfiða byrjun á tímabilinu. Bröndby er ekki með nema sex stig.

Bröndby 0 - 2 Midtjylland
0-1 Evander ('14, víti)
0-2 Pione Sisto ('26)

Í Svíþjóð var Hákon Rafn Valdimarsson á milli stanga Elfsborg sem tapaði útileik gegn Djurgården eftir að hafa lent tveimur mörkum undir í fyrri hálfleik.

Elfsborg sótti í sig veðrið í seinni hálfleik en það gekk ekki að skora. Sveinn Aron Guðjohnsen kom inn af bekknum á 71. mínútu og minnkuðu gestirnir muninn tíu mínútum síðar en það dugði ekki til. Lokatölur 2-1 fyrir heimamenn.

Elfsborg er með 24 stig eftir 20 umferðir og siglir lygnan sjó, níu stigum frá fallsvæðinu þegar tíu leikir eru eftir.

Djurgården 2 - 1 Elfsborg
1-0 H. Ekdal ('10)
2-0 H. Finndell ('26)
2-1 J. Ondrejka ('81)

Þá var Bjarni Mark Antonsson ekki í hóp hjá Start sem rúllaði yfir Grorud í norsku B-deildinni og er í harðri baráttu um umspilssæti fyrir efstu deild. í D-deildinni skoraði Alexander Ingi Gunnþórsson eina mark leiksins gegn varaliði Lilleström.

Alexander Ingi er í liði Skjetten sem siglir lygnan sjó um miðjan riðilinn sinn með 28 stig eftir 18 umferðir. Varalið Lilleström er með 24 stig.

Ögmundur Kristinsson var að lokum ekki í leikmannahópi Olympiakos sem gerði jafntefli við Asteras Tripolis á útivelli í annarri umferð gríska deildartímabilsins.

Lilleström2 0 - 1 Skjetten
0-1 Alexander Ingi Gunnþórsson ('56)

Start 5 - 0 Grorud

Asteras Tripolis 0 - 0 Olympiakos


Athugasemdir
banner
banner
banner