Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mán 29. ágúst 2022 07:30
Brynjar Ingi Erluson
Leikmaður Lyngby felldi tár eftir fallegan gjörning frá stuðningsmönnum Viborg
Marcel Romer
Marcel Romer
Mynd: Getty Images
Marcel Romer, leikmaður Lyngby í Danmörku, klappaði sérstaklega fyrir stuðningsmönnum Viborg eftir 2-1 tapið í dönsku úrvalsdeildinni í gær.

Romer var á mála hjá Viborg frá 2013 til 2016 áður en hann fór til SönderjyskE og þaðan til Lyngby.

Fyrr á þessu ári missti Romer eiginkonu sína skyndilega en þau voru nýgift og í blóma lífsins. Heimur hans snerist á hvolf.

Hann fékk mikinn stuðning frá Frey Alexanderssyni, þjálfara Lyngby, stuðningsmönnum og liðsfélögum, en í gær fékk hann stuðning úr óvæntri átt.

Stuðningsmenn Viborg mættu og klöppuðu sérstaklega fyrir honum og vildu sýna honum stuðning eftir erfiða tíma og voru þá með borða, skilti og annað með hlýjum skilaboðum. Tilfinningaþrungin stund fyrir Romer sem þakkaði innilega fyrir sig en þetta má sjá hér fyrir neðan.


Athugasemdir
banner
banner
banner