Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mán 29. ágúst 2022 19:40
Ívan Guðjón Baldursson
Viðræður Ajax við Chelsea komnar langt á veg
Ziyech hefur komið að 24 mörkum í 84 leikjum með Chelsea.
Ziyech hefur komið að 24 mörkum í 84 leikjum með Chelsea.
Mynd: EPA

Hakim Ziyech er á leið aftur til Ajax þar sem hann mun skrifa undir eins árs lánssamning.


Ajax vantar kantmann til að fylla í skarðið sem Antony skilur eftir með félagsskiptum sínum til Manchester United.

Ziyech hefur ekki fundið taktinn frá félagsskiptum sínum til Chelsea og hefur rætt við AC Milan og Ajax í sumar. 

Milan krækti í Charles De Ketelaere og bendir allt til þess að Ziyech fari til Ajax.

Sumarglugginn lokar á fimmtudagskvöldið og því hafa félögin þrjá sólarhringa til að ljúka viðskiptunum.

Uppfærsla: Viðræður virðast hafa siglt í strand og hefur Ajax ákveðið að reyna við Lucas Ocampos hjá Sevilla.


Athugasemdir
banner
banner
banner