Barcelona vill Díaz frá Liverpool - Úlfarnir skoða markverði - City til í að hlusta á tilboð í Grealish
   mið 29. september 2021 14:25
Elvar Geir Magnússon
Dregið í Þjóðadeildinni í desember - Ísland getur lent með þessum liðum
Icelandair
Ísland er í fyrsta styrkleikaflokki í B-deild.
Ísland er í fyrsta styrkleikaflokki í B-deild.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Dregið verður í Þjóðadeild UEFA fimmtudaginn 16. desember. Drátturinn fer fram í Montreux í Sviss og hefst hann kl. 17:00 að íslenskum tíma.

Ísland féll úr A-deild Þjóðadeildarinnar í fyrra og mun því leika í B-deildinni þegar næsta Þjóðadeild fer af stað á næsta ári.

Ísland er í fyrsta styrkleikaflokki B-deildarinnar og getur því ekki dregist með Úkraínu, Svíþjóð eða Bosníu í riðli.

Fyrsti styrkleikaflokkur
Úkraína
Svíþjóð
Bosnía og Hersegóvína
Ísland

Annar styrkleikaflokkur
Finnland
Noregur
Skotland
Rússland

Þriðji styrkleikaflokkur
Ísrael
Rúmenía
Serbía
Írland

Fjórði styrkleikaflokkur
Slóvenía
Svartfjallaland
Albanía
Armenía
Athugasemdir
banner
banner
banner