Pep Guardiola, stjóri Manchester City, fór fögrum orðum um Marco Verratti, miðjumann PSG, eftir leik PSG og City í Meistaradeildinni í gær.
„Ég er ástfanginn, hann er magnaður leikmaður. Af því þegar hann er undir pressu þá býr hann yfir þeirri ró að taka auka snertingu og býr með því til möguleika á sendingum fyrir aftan miðjumennina," sagði Guardiola um ítaska miðjumanninn.

„Hann er lágvaxinn en þú getur alltaf treyst á hann. Ég er ánægður að hann sé kominn til baka eftir meiðsli," bætti Guardiola við.
PSG lagði City 2-0 á heimavelli sínum í París. Það voru þeir Idrissa Gueye og Lionel Messi sem skoruðu mörk PSG í leiknum.
Athugasemdir