Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 29. september 2021 18:46
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Meistaradeildin: Atalanta lagði Young Boys - Öruggt hjá Zenit
Matteo Pessina
Matteo Pessina
Mynd: Getty Images
Tveimur leikjum er lokið í Meistaradeildinni í dag.

Atalanta fékk Young Boys í heimsókn í F-riðli. Atalanta skoraði mark í fyrri hálfleik en markið dæmt af vegna rangstöðu, Matteo Pessina skoraði síðan löglegt mark á 68. mínútu fyrir Atalanta.

1-0 sigur Atalanta staðreynd. Young Boys tókst því ekki að byggja ofan á frábæran sigur gegn Manchester United í fyrstu umferð. Atalanta er á toppi riðilsins með 4. stig eftir 2-2 jafntefli gegn Villarreal í fyrstu umferð.

Í H-riðli vann Zenit öruggan 4-0 sigur gegn Malmo en sænska félagið var manni færri meirihluta síðari hálfleiks.

Atalanta 1 - 0 Young Boys
1-0 Matteo Pessina ('68 )

Zenit 4 - 0 Malmo FF
1-0 Claudinho ('9 )
2-0 Daler Kuzyaev ('49 )
3-0 Aleksey Sutormin ('80 )
4-0 Wendel ('90 )
Rautt spjald: Anel Ahmedhodzic, Malmo FF ('53)


Athugasemdir
banner
banner
banner