Miðasalan er hafin fyrir úrslitaleikinn í Mjólkurbikar kvenna sem fram fer næstkomandi föstudag. Það eru Breiðablik og Þróttur Reykjavík sem eigast við í þessum síðasta leik íslenska kvennaboltans árið 2021.
Miðasalan fer fram á Tix.is en hægt er að nálgast hana með því að smella hérna.
Leikurinn fram föstudaginn 1. október kl. 19:15 á Laugardalsvelli.
Allir á völlinn!
Miðaverð
Fullorðnir - 2000 krónur
16 ára og yngri - 200 krónur
Athugasemdir