Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mið 29. september 2021 19:25
Elvar Geir Magnússon
Pogba skartar nýrri hárgreiðslu
Mynd: Getty Images
Nú stendur yfir leikur Manchester United og Villarreal í Meistaradeild Evrópu, hann hófst klukkan 19:00 og er staðan markalaus þegar þessi orð eru skrifuð.

Paul Pogba, miðjumaður Manchester United, skartar nýrri hárgreiðslu.

Pogba er mikill tískuáhugamaður og er vanur því að skipta reglulega um hárgreiðslur, oft við litla kátínu hjá vissum sparkspekingum

„Þekkjandi Paul þá veit ég að hann vill að fólk tali um sig sem frábæran leikmann en oft hafa skrautlegar hársgreiðslur og dansspor verið meira í sviðsljósinu en frammistaða hans," sagði Rio Ferdinand fyrir nokkru síðan.

United verður að vinna leikinn í kvöld en liðið tapaði fyrir Young Boys frá Sviss í fyrstu umferð riðilsins.
Athugasemdir
banner
banner