Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 29. september 2021 21:11
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Sjáðu markið: Ronaldo kom, sá og sigraði á síðustu stundu
Ronaldo reif sig úr að ofan. Hann hefur alveg efni á því.
Ronaldo reif sig úr að ofan. Hann hefur alveg efni á því.
Mynd: EPA
Portúgalska ofurstjarnan Cristiano Ronaldo var hetja Manchester United gegn Villarreal í Meistaradeildinni.

Ronaldo var að spila á Old Trafford í Meistaradeildinni sem leikmaður Man Utd í fyrsta sinn í 12 ár. Stuðningsmenn sungu nafn hans þegar liðin gengu af vellinum.

Ronaldo skoraði nefnilega sigurmarkið á síðustu stundu; hann kláraði úr þröngu færi eftir að Jesse Lingard lagði boltann á hann. Ronaldo fagnaði með því að rífa sig úr að ofan. Fyrir það fékk hann gula spjaldið.

Hægt er að sjá markið með því að smella hérna.

Atalanta er á toppi riðilsins með 4 stig, Young Boys og Manchester United eru með 3 stig og Villarreal á botninum með 1 stig.
Athugasemdir
banner
banner
banner