Það var rólegt framanaf þegar Þróttur fékk Þór/KA í heimsókn í dag. Það var markalaust í hálfleik en færin fóru að láta sjá sig í seinni hálfleik.
Mollee Smith í marki Þróttar varði í tvígang mjög vel frá Þór/KA en í þriðja sinn kom Sandra María Jessen boltanum í netið en rangstaða var dæmd.
Þróttarar fengu tækifæri undir lok leiksins að ná í stigin þrjú en Harpa Jóhannsdóttir varði skalla frá Caroline Murray.
Þór/KA mun leika úrslitaleik gegn Víkingi um 3. sætið og Þróttur mætir FH í leik um fimmta sætið.
Besta-deild kvenna - Efri hluti
Lið | L | U | J | T | Mörk | mun | Stig |
---|---|---|---|---|---|---|---|
1. Breiðablik | 22 | 20 | 0 | 2 | 64 - 13 | +51 | 60 |
2. Valur | 22 | 19 | 2 | 1 | 54 - 18 | +36 | 59 |
3. Þór/KA | 22 | 10 | 4 | 8 | 42 - 35 | +7 | 34 |
4. Víkingur R. | 22 | 9 | 6 | 7 | 33 - 36 | -3 | 33 |
5. Þróttur R. | 22 | 7 | 5 | 10 | 26 - 33 | -7 | 26 |
6. FH | 22 | 8 | 1 | 13 | 32 - 46 | -14 | 25 |
Athugasemdir