Chelsea og West Ham fylgjast með Durán
   sun 29. september 2024 16:07
Haraldur Örn Haraldsson
Byrjunarlið Fylkis og KA: Ásgeir Eyþórs á bekknum
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Leikur Fylkis og KA í neðri hluta Bestu deildar karla hefst klukkan 17:00 í dag. Þetta er leikur sem skiptir Fylkir gríðarlegu máli, þar sem það er lítið eftir af móti og þeir eru í neðsta sæti deildarinnar. Byrjunarliðin hafa verið birt og þetta eru breytingarnar sem þjálfararnir gera á sínum liðum.


Lestu um leikinn: Fylkir 1 -  1 KA

Rúnar Páll Sigmundsson þjálfari Fylkis gerir tvær breytingar á sínu liði sem tapaði 2-0 fyrir Fram í síðustu umferð. Það eru Ásgeir Eyþórsson og Nikulás Val Gunnarsson sem þurfa að setjast á bekkinn. Matthias Præst og Benedikt Daríus Garðarsson koma inn fyrir þá.

Hallgrímur Jónasson þjálfari KA gerir þrjár breytingar á sínu liði sem gerði 3-3 jafntefli við HK í síðustu umferð. Bjarni Aðalsteinsson, Viðar Örn Kjartansson og Hrannar Björn Steingrímsson sem koma inn í liðið. Darko Bulatovic og Hallgrímur Mar Steingrímsson setjast á bekkinn en Mikael Breki Þórðarson er ekki í hóp.


Byrjunarlið Fylkir:
1. Ólafur Kristófer Helgason (m)
5. Orri Sveinn Segatta
8. Ragnar Bragi Sveinsson (f)
9. Matthias Præst
10. Benedikt Daríus Garðarsson
11. Þórður Gunnar Hafþórsson
16. Emil Ásmundsson
17. Birkir Eyþórsson
20. Sigurbergur Áki Jörundsson
25. Þóroddur Víkingsson
27. Arnór Breki Ásþórsson

Byrjunarlið KA:
13. Steinþór Már Auðunsson (m)
3. Kári Gautason
5. Ívar Örn Árnason
7. Daníel Hafsteinsson
8. Harley Willard
11. Ásgeir Sigurgeirsson (f)
22. Hrannar Björn Steingrímsson
23. Viðar Örn Kjartansson
28. Hans Viktor Guðmundsson
30. Dagur Ingi Valsson
77. Bjarni Aðalsteinsson
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner