Ipswich tekur á móti Aston Villa í fyrri leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni. Byrjunarliðin eru komin inn.
Kalvin Phillips er á láni hjá Ipswich frá Manchester City. Hann var fjarverandi vegna meiðsla í síðasta leik gegn Southampton en hann snýr aftur í byrjunarliðið í dag.
Það er ein breyting á liði Aston Villa en Leon Bailey kemur inn í liðið fyrir John McGinn sem er meiddur.
Ipswich: Muric, Tuanzebe, O'Shea, Greaves, Davis, Morsy, Phillips, Ogbene, Hutchinson, Clarke, Delap
Aston Villa: Martinez, Konsa, Diego Carlos, Pau, Digne, Tielemans, Onana, Ramsey, Rogers, Bailey, Watkins.
Athugasemdir