Man Utd fær Tottenham í heimsókn á Old Trafford í seinni leik dagsins í úrvalsdeildinni. Byrjunarliðin eru komin í hús.
Það eru tvær breytingar á liði Man Utd sem gerði markalaust jafntefli gegn Crystal Palace í síðustu umferð. Amad Diallo og Christian Eriksen fá sér sæti á bekknum og Marcus Rashford og Manuel Ugarte koma inn.
Þá er Harry Maguire ekki í leikmannahópnum vegna meiðsla.
Það er mikið áfall fyrir Tottenham að Heung-min Son er fjarverandi vegna meiðsla. Timo Werner kemur inn í liðið í hans stað.
Tottenham: Vicario; Porro, Romero, Van de Ven, Udogie; Bentancur, Maddison; Johnson, Kulusevski, Werner; Solanke
Man Utd: Onana, Mazraoui, De Ligt, Martinez, Dalot, Mainoo, Ugarte, Fernandes, Garnacho, Zirkzee, Rashford.
Athugasemdir