sun 29. september 2024 10:00
Brynjar Ingi Erluson
Fær góða dóma fyrir frammistöðuna á Reale Arena - „Leggið nafnið á minnið“
Mynd: Getty Images
Seltirningurinn Orri Steinn Óskarsson fær góða dóma hjá Fotmob og Sofa Score fyrir innkomuna og mörkin tvö í 3-0 sigri Real Sociedad á Valencia í gær.

Orri kom inn fyrir reynsluboltann Mikel Oyarzabal í síðari hálfleiknum og skoraði tvö alvöru framherja mörk.

Þetta voru fyrstu mörk hans fyrir Sociedad, en þetta var bæði léttir fyrir hann og liðsfélaga hans sem höfðu ekki fagnað neitt sérstaklega góðu gengi í leikjunum á undan.

„Hæ stuðningsmenn Real Sociedad. Takk kærlega fyrir stuðninginn. Góða nótt, þrír punktar í hús!“ sagði Orri eftir leikinn.

Samkvæmt Fotmob fær Orri 8,5 í einkunn og var í öðru sæti yfir bestu menn leiksins. Sergio Gomez var hæstur með 9,1, en Orri og Jon Aramburu voru jafnir.

Á Sofa Score er Orri í þriðja sæti með 8,1 í einkunn og eins og við greindum frá í gær fékk hann tvær stjörnur eins og sjö aðrir liðsfélagar hans frá spænska blaðinu MARCA.

Aðgangurinn La Liga Extra birti myndband af Orra á X, þar sem það bað fólk hreinlega um að leggja nafn hans á minnið.


Athugasemdir
banner
banner