Hansi Flick, þjálfari Barcelona, segist taka ábyrgð á 4-2 tapi liðsins gegn Osasuna í gær.
Börsungar höfðu unnið alla sjö leiki sína í La Liga fram að leiknum gegn Osasuna.
Flick tók þá ákvörðun að bekkja þá Lamine Yamal og Raphinha, tvo menn sem hafa verið með bestu mönnum tímabilsins, og kostaði það liðið fram á við.
„Ef þú vilt skella skuldinni á einhvern, skelltu henni þá á mig. Sökin er mín,“ sagði Flick.
„Ég þurfti að rótera í liðinu. Það var nauðsynlegt,“ sagði Flick enn fremur.
Athugasemdir