Glódís Perla Viggósdóttir var rekin af velli þegar Bayern heimsótti Weder Bremen í þýsku deildinni í dag.
Það virtist hafa lítil áhrif á liðið en Glódís fékk sitt annað gula spjald snemma í seinni hálfleik. Þá var Bayern með 1-0 forystu.
Georgia Stanway bætti öðru markinu við og tvö mörk í viðbót komu undir lok leiksins. 4-0 sigur Bayern staðreynd.
Bayern fer vel af stað og er með fullt hús stiga eftir fjórar umferðir á toppi deildarinnar.
Athugasemdir