Lionel Messi var á skotskónum með Inter Miami er liðið gerði 1-1 jafntefli við Charlotte í MLS-deildinni í nótt.
Argentínumaðurinn hefur verið að spila vel síðan hann snéri til baka úr meiðslum en hann skoraði jöfnunarmarkið á 69. mínútu með laglegu skoti fyrir utan teig.
Ljóshærður Luis Suarez fékk dauðafæri til að tryggja sigurinn seint í uppbótartíma en setti boltann yfir tæpum metra frá markinu.
Inter Miami er áfram í efsta sæti Austur-deildarinnar með 65 stig.
Nökkvi Þeyr Þórisson kom þá inn af bekknum og spilaði síðasta hálftímann í 3-1 sigri St. Louis á Sporting Kansas City. St. Louis 12. sæti Vestur-deildarinnar með aðeins 34 stig.
MESSI. BANGER. ???? pic.twitter.com/84VIwmBOF3
— Major League Soccer (@MLS) September 29, 2024
Athugasemdir