Pólski markvörðurinn Wojciech Szczesny er að ganga í raðir Barcelona á frjálsri sölu en hann mun halda í læknisskoðun á morgun.
Marc-andre ter Stegen, aðalmarkvörður Börsunga, sleit krossband í leik liðsins gegn Villarreal á dögunum og þurfti varamarkvörðurinn Inaki Pena að standa á milli stanganna í 4-2 tapinu gegn Osasuna um helgina.
Barcelona hefur verið að vinna í því að fá inn markvörð til leysa Ter Stegen af hólmi og er nú útlit fyrir að það verði gengið frá því á næstu dögum.
Telegraph segir að Szczesny, sem var síðast á mála hjá Juventus, verði í Barcelona á morgun til að gangast undir læknisskoðun áður en hann skrifar undir samning út tímabilið.
Barcelona er á toppnum í La Liga með 21 stig eftir átta leiki.
Athugasemdir