banner
   sun 29. september 2024 08:30
Brynjar Ingi Erluson
Þjálfari Sociedad: Ánægður fyrir hönd Orra
Orri Steinn fékk faðmlög og fimmur eftir leikinn
Orri Steinn fékk faðmlög og fimmur eftir leikinn
Mynd: Getty Images
Imanol Alguacil, þjálfari Real Sociedad á Spáni, var ánægður fyrir hönd Orra Steins Óskarssonar, sem skoraði tvö mörk í langþráðum og góðum 3-0 sigri á Valencia í gær.

Orri Steinn þurfti að bíða þolinmóður eftir fyrsta markinu en hann var að spila fimmta deildarleik sinn með liðinu.

Hann hafði ekki úr miklu að moða í fyrstu leikjunum enda var sóknarleikurinn afar dapur í byrjun tímabils, en stíflan brast í gær og skoraði Orri tvö góð mörk á fjærstönginni.

„Mikel Oyarzabal og liðsfélagar hans þurftu að leggja sig gríðarlega fram til að Orri gæti átt möguleika til að skora þessi tvö mörk. Allir eiga hlut í þessum mörkum, en ég er líka ánægður fyrir hönd Orra. Ég er viss um að þessi leikur hafi góð áhrif á hann,“ sagði Alguacil á blaðamannafundinum eftir leikinn í gær.

Sociedad mætir næst Anderlecht í Evrópudeildinni á fimmtudag en sá leikur er spilaður í San Sebastian á Spáni.
Athugasemdir
banner