Ollie Watkins, framherji Aston Villa, var að vonum svekktur eftir jafntefli gegn Ipswich í dag.
Liam Delap kom Ipswich yfir en Aston Villa tókst að ná forystunni áður en Delap tryggði Ipswich stig. Watkins kom Villa yfir.
Þetta var opinn og skemmtilegur leikur en það hentaði Ipswich vel.
„Eins og við spiluðum þá datt þetta eiginlega bara fyrir þá. Þetta var eins og körfuboltaleikur, fram og til baka og það er það sem þeir vildu. Þeir náðu okkur með skyndisóknum nokkrum sinnum," sagði Watkins.
„Við fengum mörg tækifæri en við vorum í vandræðum með síðustu sendinguna. Ég er meðtalinn þar. Við hefðum getað klárað leikinn eftir að ég skoraði."
Athugasemdir