Búist er við því að Bernard, kantmaður Everton, verði frá keppni í nokkra mánuði eftir að hafa meiðst í 3-2 tapinu gegn Brighton um helgina.
Bernard meiddist á liðböndum í hné en hann varð að fara af velli eftir hálftíma.
Hinn 27 ára gamli Bernard hefur skorað fjögur mörk í 44 leikjum síðan hann kom frá Shakhtar Donetsk sumarið 2018.
Gylfi Þór Sigurðsson hefur byrjað á bekknum hjá Everton í síðustu tveimur leikjum en hann kom inn á fyrir Bernard í leiknum á laugardag.

Gylfi verður væntanlega mættur í byrjunarliðið á ný gegn gömlu félögunum í Tottenham á sunnudag.
Athugasemdir