Barcelona vill Díaz frá Liverpool - Úlfarnir skoða markverði - City til í að hlusta á tilboð í Grealish
   þri 29. október 2019 11:30
Magnús Már Einarsson
Inter vill fá Matic
Mynd: Getty Images
Inter hefur áhuga á að fá Nemanja Matic, miðjumann Manchester United, í sínar raðir í janúar. Sky á Ítalíu segir frá þessu.

Antonio Conte, þjálfari Inter, þekkir Matic síðan þeir voru báðir saman hjá Chelsea á sínum tíma.

Hinn 31 árs gamli Matic hefur einungis leikið fimm leiki á tímabilinu og gæti hugsað sér til hreyfings í janúar.

Inter er í titilbaráttu á Ítalíu en liðið er stigi á eftir toppliði Juventus í augnablikinu.
Athugasemdir
banner
banner
banner