Heimavöllurinn birti í gær myndband á Facebook síðu sinni sem sýnir fyrsta mark kvennaliðs Benfica í 0-5 sigri á Maritimo á sunnudag.
Cloé Lacasse skoraði markið en hún gekk í raðir félagsins frá ÍBV í ágúst. Lacasse átti frábæran sprett og hljóp upp allan völlinn og átti gott skot sem markvörður Maritimo réði ekki við.
Markvörður Benfica var fljót að koma boltanum á Cloé sem hélt strax af stað upp völlinn. Markvörður Benfica er fyrrum markvörður Gróttu, Ana Lúcia Dida, en hún gekk einnig í raðir Benfica í ágúst.
Markið má sjá hér að neðan. Benfica er efst í deildinni með fullt hús stiga, fimmtán stig og markatölun 46:0!

Athugasemdir