Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 29. október 2019 07:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Ronaldo sendi portúgalska stúlknalandsliðinu nýja skó
Portúgalska U17 liðið í vor.
Portúgalska U17 liðið í vor.
Mynd: Getty Images
Portúgalinn Cristiano Ronaldo, einn af albestu knattspyrnumönnum samtímans, langaði til að verðlauna samlanda sína fyrir góðan árangur.

Portúgalska stúlknalandsliðið, U17 ára landsliðið, komst á dögunum í milliriðla fyrir EM2020. Þegar ljóst var að liðið hafði tryggt sig áfram sendi Ronaldo öllum leikmönnum liðsins nýtt par af takkaskóm og bréf fylgdi með.

„Ég sendi þér þessa Mercurial Dream skó og vona að þeir hjálpi til þess að draumar þínir rætist. Það er nauðsynlegt að dreyma um eitthvað og það er enn nauðsynlegra að vinna að því að láta drauma sína rætast," stendur í bréfinu frá Ronaldo.

„Gangi þér vel og vonandi koma skórnir að góðum notum - Cristiano Ronaldo."




Athugasemdir
banner
banner