Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   þri 29. október 2019 22:23
Brynjar Ingi Erluson
Spánn: Messi skoraði tvö og lagði upp tvö í sigri
Lionel Messi og Arturo Vidal fagna marki Sílemannsins í kvöld
Lionel Messi og Arturo Vidal fagna marki Sílemannsins í kvöld
Mynd: Getty Images
Barcelona 5 - 1 Valladolid
1-0 Clement Lenglet ('2 )
1-1 Kiko Olivas ('15 )
2-1 Arturo Vidal ('29 )
3-1 Lionel Andres Messi ('34 )
4-1 Lionel Andres Messi ('75 )
5-1 Luis Suarez ('77 )

Lionel Messi skoraði tvö og lagði upp önnur tvö í 5-1 sigri Barcelona á Real Valladolid í spænsku deildinni í kvöld.

Það var franski miðvörðurinn Clement Lenglet sem skoraði fyrsta markið á 2. mínútu. Boltinn barst til hans í teignum, hann lét vaða og fór boltinn af varnarmanni, í slá og inn.

Kiko Olivas jafnaði metin á 15. mínútu fyrir Valladolid áður en Messi tók málin í sínar hendur. Messi átti frábæra sendingu inn í teiginn á Arturo Vidal sem teygði sig í boltann og skoraði.

Messi gerði þriðja markið á 34. mínútu. Frábær aukaspyrna sem markvörður Valladolid átti ekki möguleika á að verja. Messi gerði fjórða markið á 75. mínútu. Það var svo Luis Suarez sem gerði fimmta markið eftir sendingu frá Messi. Hann þræddi boltann inn á Suarez sem átti í engum vandræðum með að skora.

Barcelona á toppinn með 22 stig en Valladolid í 9. sæti með 14 stig.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner