Arturo Vidal, leikmaður Barcelona á Spáni, segist óánægður hjá félaginu
Vidal hefur aðeins leikið 209 mínútur á tímabilinu með Barcelona en Sergio Busquets, Frenkie De Jong og Arthur eru allir ofar í goggunarröðinni.
Hann er ekki ánægður með leiktímann en vill ekki gefast upp í baráttunni þrátt fyrir mikinn áhuga frá Inter á Ítalíu.
„Ég mun leggja hart að mér og hjálpa liðinu að ná markmiði tímabilsins því ég vil ekki fara frá Barcelona en ég er ekki ánægður," sagði Vidal.
Athugasemdir