Zlatan Ibrahimovic hefur gefið í skyn að hann sé á leið í spænska boltann á nýjan leik.
Hinn 38 ára gamli Zlatan er að renna út af samningi hjá LA Galaxy og þykir líklegur til að snúa aftur til Evrópu í janúar glugganum.
Hinn 38 ára gamli Zlatan er að renna út af samningi hjá LA Galaxy og þykir líklegur til að snúa aftur til Evrópu í janúar glugganum.
„Halló Spánn, hvað haldið þið? Ég er að koma aftur," sagði Zlatan á Instagram í dag.
Zlatan gaf ekkert meira upp um það hvort hann sé að fara að ganga til liðs við spænskt félag eða hvort hann sé á leið til Spánar í öðrum erindagjörðum.
Zlatan hefur mest spilað á Ítalíu á ferlinum en hann lék með Barcelona í spænsku úrvalsdeildinni á árunum 2009 til 2011.
Zlatan to La Liga confirmed?! 👀🇪🇸 pic.twitter.com/SBsKm6JMLA
— ESPN FC (@ESPNFC) October 29, 2019
Athugasemdir