Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 29. október 2022 13:22
Ívan Guðjón Baldursson
England: Gullfallegt mark De Bruyne skaut City á toppinn
De Bruyne er kominn með 3 mörk og 9 stoðsendingar í 12 úrvalsdeildarleikjum á tímabilinu.
De Bruyne er kominn með 3 mörk og 9 stoðsendingar í 12 úrvalsdeildarleikjum á tímabilinu.
Mynd: EPA

Leicester 0 - 1 Man City
0-1 Kevin De Bruyne ('49)


Leicester byrjaði enska úrvalsdeildartímabilið hrikalega en virðist vera búið að ná sér eftir erfiða byrjun. Lærisveinar Brendan Rodgers voru búnir að vinna tvo leiki í röð fyrir stórleikinn gegn Englandsmeisturum Manchester City í dag.

Gestirnir frá Manchester voru með yfirhöndina í fyrri hálfleik en heimamenn í Leicester áttu sínar rispur.

Kevin De Bruyne skoraði gullfallegt mark beint úr aukaspyrnu í upphafi síðari hálfleiks og við það opnaðist leikurinn. Gestirnir hefðu getað tvöfaldað forystuna en heimamenn í Leicester áttu góð færi og komust nálægt því að jafna en inn vildi boltinn ekki. 

Lokatölur urðu 0-1 þar sem mark De Bruyne skilur liðin að og er Man City komið á topp ensku úrvalsdeildarinnar, með eins stigs forystu á Arsenal sem á leik til góða gegn Nottingham Forest á morgun.

Leicester sýndi flotta frammistöðu en er áfram í neðri hluta deildarinnar, með 11 stig eftir 13 umferðir.

Sjáðu sigurmarkið


Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 33 23 5 5 77 26 +51 74
2 Liverpool 33 22 8 3 75 32 +43 74
3 Man City 32 22 7 3 76 32 +44 73
4 Aston Villa 34 20 6 8 71 50 +21 66
5 Tottenham 32 18 6 8 65 49 +16 60
6 Newcastle 32 15 5 12 69 52 +17 50
7 Man Utd 32 15 5 12 47 48 -1 50
8 West Ham 34 13 9 12 54 63 -9 48
9 Chelsea 31 13 8 10 61 52 +9 47
10 Brighton 32 11 11 10 52 50 +2 44
11 Wolves 33 12 7 14 46 53 -7 43
12 Fulham 34 12 6 16 50 54 -4 42
13 Bournemouth 33 11 9 13 48 60 -12 42
14 Crystal Palace 33 9 9 15 42 56 -14 36
15 Brentford 34 9 8 17 52 59 -7 35
16 Everton 33 10 8 15 34 48 -14 30
17 Nott. Forest 34 7 9 18 42 60 -18 26
18 Luton 34 6 7 21 47 75 -28 25
19 Burnley 34 5 8 21 37 69 -32 23
20 Sheffield Utd 33 3 7 23 31 88 -57 16
Athugasemdir
banner