Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 29. október 2022 07:20
Ívan Guðjón Baldursson
Lára Einarsdóttir áfram hjá HK
Mynd: hk

Lára Einarsdóttir er búin að framlengja samning sinn við HK og gildir hann nú út árið 2024.


Lára er gríðarlega leikreyndur varnarmaður fædd 1995 og með yfir 150 leiki að baki í efstu deild.

Hún hefur verið í lykilhlutverki í varnarlínu HK undanfarin tvö tímabil og stóð sig vel er HK endaði í fjórða sæti Lengjudeildarinnar í sumar.

„Við HK-ingar fögnum því að Lára taki slaginn með okkur næstu tvö árin en hennar reynsla og yfirvegun í vörninni er ótrúlega mikilvæg fyrir okkar unga hóp sem ætlar sér stóra hluti á næstunni," segir meðal annars í færslu frá HK.

Lára er uppalin á Akureyri og lék með Þór/KA til margra ára áður en hún skipti í HK.


Athugasemdir
banner
banner
banner