Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   lau 29. október 2022 21:57
Brynjar Ingi Erluson
Sjáðu mörkin: Willum skoraði og lagði upp í sigri
Willum Þór Willumsson er að gera góða hluti í Hollandi
Willum Þór Willumsson er að gera góða hluti í Hollandi
Mynd: Go Ahead Eagles
Willum Þór Willumsson, leikmaður Go Ahead Eagles í Hollandi, skoraði og lagði upp í 3-1 sigri á Excelsior í hollensku deildinni í kvöld.

Blikinn var í byrjunarliði Go Ahead Eagles og skoraði mark sitt á 39. mínútu.

Hann hóf sóknina, spilaði á Bobby Adekanye áður en hann fékk aftur boltann í teignum og skoraði. Willum launaði honum greiðann tveimur mínútum síðar er hann lagði boltann inn fyrir á Adekanye sem kom Go Ahead Eagles í 2-0.

Willum er kominn með tvö mörk og tvær stoðsendingar í átta leikjum í deildinni á þessu tímabili. Eagles er í 10. sæti með 13 stig.

Sjáðu mark Willums
Sjáðu stoðsendinguna
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner