Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 29. október 2022 22:24
Brynjar Ingi Erluson
Spánn: Lewandowski hetja Börsunga - Þrettán mörk í tólf leikjum
Robert Lewandowski skoraði sigurmarkið
Robert Lewandowski skoraði sigurmarkið
Mynd: EPA
Valencia 0 - 1 Barcelona
0-1 Robert Lewandowski ('90 )

Pólski framherjinn Robert Lewandowski skoraði sigurmark Barcelona í 1-0 sigrinum á Valencia í La Liga á Spáni í kvöld en sá er að byrja vel hjá félaginu.

Vörn Valencia gerði vel í kvöld og náði að verjast sterkri sóknarlínu Barcelona.

Lino, leikmaður Valencia, kom boltanum í netið í byrjun síðari hálfleiks en liðsfélagi hans, Marcos, handlék knöttinn í aðdragandanum og var markið dæmt af. Xavi, þjálfari Barcelona, hefur talað um að ákvarðanir hafa ekki verið að falla með liðinu en í þetta sinn gerði það svo sannarlega því þetta var ansi tæpt.

Börsungar áttu sín færi en sigurmarkið kom ekki fyrr en á þriðju mínútu í uppbótartíma. Raphinha átti sendingu fyrir sem Lewandowski náði að koma í netið.

Pólski framherjinn er með þrettán mörk í tólf deildarleikjum og alls ekki þurft tíma til að aðlagast.

Barcelona er nú á toppnum með 31 stig en Real Madrid, sem er með jafnmörg stig, á leik til góða og getur tekið toppsætið á morgun.
Stöðutaflan Spánn La Liga - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Real Madrid 31 24 6 1 67 20 +47 78
2 Barcelona 31 21 7 3 62 34 +28 70
3 Girona 31 20 5 6 63 39 +24 65
4 Atletico Madrid 31 19 4 8 59 36 +23 61
5 Athletic 32 16 10 6 52 30 +22 58
6 Real Sociedad 31 13 11 7 45 33 +12 50
7 Valencia 31 13 8 10 34 32 +2 47
8 Betis 31 11 12 8 38 37 +1 45
9 Getafe 31 9 12 10 37 43 -6 39
10 Villarreal 31 10 9 12 49 54 -5 39
11 Osasuna 31 11 6 14 36 44 -8 39
12 Las Palmas 31 10 7 14 29 35 -6 37
13 Sevilla 31 8 10 13 39 44 -5 34
14 Alaves 31 8 8 15 26 38 -12 32
15 Mallorca 31 6 13 12 25 36 -11 31
16 Vallecano 31 6 13 12 25 38 -13 31
17 Celta 31 6 10 15 33 46 -13 28
18 Cadiz 31 4 13 14 21 41 -20 25
19 Granada CF 32 3 9 20 33 61 -28 18
20 Almeria 31 1 11 19 30 62 -32 14
Athugasemdir
banner
banner
banner