Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 29. október 2022 20:01
Brynjar Ingi Erluson
Þýskaland: Bellingham gerði sigurmark Dortmund
Jude Bellingham skoraði sigurmarkið
Jude Bellingham skoraði sigurmarkið
Mynd: Getty Images
Eintracht Frankfurt 1 - 2 Borussia D.
0-1 Julian Brandt ('21 )
1-1 Daichi Kamada ('26 )
1-2 Jude Bellingham ('52 )

Enski miðjumaðurinn Jude Bellingham gerði sigurmark Borussia Dortmund í 2-1 sigrinum á Eintracht Frankfurt í þýsku deildinni í dag en Dortmund er nú þremur stigum frá toppliði Bayern.

Julian Brandt kom Dortmund á bragðið eftir laglega sendingu frá Donyell Malen á 21. mínútu en japanski miðjumaðurinn Daichi Kamada jafnaði aðeins fimm mínútum síðar.

Jesper Lindström komst í gott færi til að ná forystunni fyrir Frankfurt undir lok fyrri hálfleiks en skot hans hafnaði í stönginni. Lindström vildi þá fá vítaspyrnu stuttu síðar er hann datt í teignum en ekkert dæmt.

Dortmund skoraði sigurmarkið snemma í síðari hálfleiknum en nú var það hinn ungi og efnilegi Youssoufa Moukoko sem fann Bellingham og skoraði Englendingurinn af yfirvegun.

Það er í raun ótrúlegt að Frankfurt hafi ekki fengið að minnsta kosti stig úr leiknum. Gregor Kobel, markvörður Dortmund, varði frábærlega í marki Dortmund og tryggði þennan sigur.

Dortmund er í 3. sæti með 22 stig, þremur stigum á eftir toppliði Bayern.
Stöðutaflan Þýskaland Bundesliga - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Leverkusen 30 25 5 0 75 20 +55 80
2 Bayern 30 21 3 6 87 37 +50 66
3 Stuttgart 30 20 3 7 68 36 +32 63
4 RB Leipzig 30 18 5 7 69 34 +35 59
5 Dortmund 30 16 9 5 58 35 +23 57
6 Eintracht Frankfurt 30 11 12 7 46 40 +6 45
7 Freiburg 30 11 7 12 42 53 -11 40
8 Augsburg 30 10 9 11 48 49 -1 39
9 Hoffenheim 30 11 6 13 53 60 -7 39
10 Heidenheim 30 8 10 12 43 52 -9 34
11 Werder 30 9 7 14 38 50 -12 34
12 Gladbach 30 7 10 13 53 60 -7 31
13 Wolfsburg 30 8 7 15 35 50 -15 31
14 Union Berlin 30 8 5 17 26 50 -24 29
15 Mainz 30 5 12 13 31 48 -17 27
16 Bochum 30 5 12 13 34 60 -26 27
17 Köln 30 4 10 16 23 53 -30 22
18 Darmstadt 30 3 8 19 30 72 -42 17
Athugasemdir
banner
banner
banner